Talbólan
Um námskeiðið
Langar þig að efla leiðtogahæfni, gagnrýna hugsun, ræðumennsku, virka hlustun, menningarlæsi, persónulegan vöxt, samskiptahæfni og verða virkari samfélagsþegn?
Ef þú trúir því að allir eiga rétt á því að deila skoðunum sínum og vera þeir sjálfir þá átt þú erindi í verkefni Talbólunnar. Lærðu að lóðsa og vertu partur af vaxandi hópi leiðtoga sem hlusta á heildina og spyrja krefjandi spurninga til þess að kafa dýpra.
Markmið Talbólunnar er að skapa vettvang þar sem fólk hvaðanæva úr samfélaginu kemur saman og leggur snjalltækin til hliðar og taka þátt í samræðum sem skipta máli.
Stundum gleymum við því hvað það er gott að fá áheyrn frá öðrum. Að skapa rými fyrir aðra til að tjá sig er gríðarlega gefandi og mikilvægt.
Á þessu námskeiði lærir þú grundvallaratriði góðrar lóðsunar.
Leiðbeinandi
Elín er sjálfstætt starfandi túlkur og markþjálfi og stundar nú framhaldsnám í „Forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun“ við Háskólann á Bifröst. Hún hefur ferðast víða og og búið í þremur heimsálfum samhliða grunnnámi.
Elín trúir því að allir eigi rétt á að tjá skoðanir sínar hvaðan sem þeir koma. Þess vegna brennur hún fyrir örugg rými, ólíkar skoðanir og mismunandi sjónarhorn.
Hún hefur haldið utan um starfsemi og umræður Aristótelesarkaffi sem nú ber verkefnaheitið Talbólan frá árinu 2018 og stýrir því verkefni í dag.
Kennsluáætlun
-
HorfaUndirbúningur rýmis (1:07)
-
HorfaStaðsetning (3:07)
-
HorfaLóðsarinn sem gestgjafi (1:06)
-
HorfaLóðsarar vs. Leiðbeinendur (3:23)
-
HorfaVerkfærakista lóðsarans (1:25)
-
HorfaUpphafsræða Talbólunnar (6:16)
-
HorfaAð lóðsa umræðuna (5:58)
-
HorfaHugljómunarspurningar (8:26)
-
HorfaAð enda umræðuna (5:15)