Stærðfræði fyrir unglingastig 3
Aðalatriðin í skemmtilegum myndböndum
Horfa á kynningarmyndband Skrá mig í námskeið
Um námskeiðið
Nemandinn lærir að reikna flókin dæmi á einfaldan hátt.
Við lok þessa undirbúningsnámskeiðs munu nemendur þekkja grunnreglur og kunna að reikna út úr viðeigandi formúlum fyrir líkindareikning, ferninga og ferningsrætur, rúmmálsfræði, algebru, jöfnur og jöfnuhneppi. Auk þess verður farið yfir algeng mistök hjá nemendum.
Eftir þetta námskeið verða nemendur klárir fyrir síðustu prófin sín í grunnskóla.
Byrjaðu núna!
Leiðbeinandi
Guðrún ólst upp í Vesturbænum til 11 ára aldurs en flutti þá til Svíþjóðar í tvö ár. Eftir að hún flutti heim frá Svíþjóð hefur hún að mestu leyti átt heima í Seljahverfinu.
Guðrún útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík af eðlisfræðibraut.
Áhugamálin hennar eru ferðalög, tónlist og körfubolti þar sem hún spilar með meistaraflokki ÍR.
Guðrún er afar metnaðarfull og finnst ótrúlega skemmtilegt að ná árangri í einhverju sem hún hefur lagt mikinn metnað og mikla vinnu í, hvort sem það tengist íþróttum, skóla eða daglega lífinu.
Guðrún hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði þegar hún útskrifaðist úr grunnskóla.
Guðrún fékk A+ í einkunn þegar hún lauk stærðfræði í 10. bekk.
„Engin spurning að ég mæli með henni til kennslu fyrir fólk sem vill bæta árangur sinn!“
- Pálmar Ragnarsson, Fyrirlesari og körfuboltaþjálfari
„Leikni Guðrúnar Eydísar í stærðfræði ber vott um gott innsæi. Einnig hefur hún framúrskarandi skilning á hugtökum sem og reiknireglum stærðfræðinnar. Gef ég Guðrúnu Eydísi mín bestu meðmæli.“
- Jens Karl Ísfjörð, stærðfræði- og náttúrufræðikennari í unglingadeild Ölduselsskóla
„Guðrún veit hvað þarf að gera til að ná árangri og býr yfir tilfinningagreind til að geta aðstoðað aðra til að ná sambærilegum árangri.“
- Bryndís Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og körfuknattleiksþjálfari hjá ÍR